Þriðdagur og hellidemba!
Er þá ekki bara kominn tími til að ég blogg dulítið! Ég myndi halda það, febrúar er búinn að líða hratt og strax hálfnaður! Búin að vera í skólanum, passa og voða lítið meira nema bara vinna þess á milli, er reyndar í fríi út þennan mánuð sem ég tel ansi gott. Þess á milli sem ég tuða, gleypi loft og er í skólanum þá kýki ég á ömmu og afa á skaganum, og fer svo í sund líka af og til þannig það er nóg að gera að nóg fyrir stafni . Sigga systir pabba á afmæli í dag er orðin 40 ára gömul eins og stendur í færslunni fyrir neðan og ætlar að halda uppá þennan merkisdag á fimtudagin:) ég veit svosem ekkert meira skemtilegt til að segja í bili þannig ég hætti bara áður en það verður of seint:)
-Rakel Bryndís
Febrúar afmælisbörn!:)
Jæja ég hef lítið bloggað hér, búið að vera mikill snúningur á mér fara hingað og þangað nóg að gera! og ekki bætir það að vera að vinna með þessu öllu en búin að vinna sáralítið núna aðalega skólinn og fara á milli staða eins og það gerist best:) en ég ætla að skella myndum af afmælisbörnum mánaðarnins!:D eða sko bara eins og síðast þessir sem eru náskyldir og eru mér næstir :) [afsakið ef einhver gleymist!]
17 Febrúar: Sigga 40
23 Febrúar: Anna Rósa 24

28 Febrúar: Rakel Bryndís 19

hef ekki meir að segja í bili þetta er komið takk takk!:)
Afmælisblogg Janúar
Jæja í dag á hann Ísar litli frændi minn afmæli í dag! til hamingju með daginn Ísar minn, en ég var að spá í að reyna að hafa það sem hefð að setja hér inn alla þá sem eiga afmæli í hverjum mánuði eða þá sem ég man eftir samt bara skild menni:) hef þetta ekki lengra talvan er að fara að segja bless :)
Særós 15 ára: 5 janúar
[Særós og Hrafnhildur Saga nýfædd]
Ísar þorri 10 ára: 22 janúar
Friðrik Pálmi 22 ára: 24 janúar
Pabbi (Gísli) 42 ára: 26 janúar
Einar Friðfinnur 13 ára: 26 janúar
Ásta 33 ára: 29 janúar
Mánudagur
Sæl verið þið, ég hef ekkert verið að hugsa um þetta blogg. Það er víst komið nýtt ár, gleðilegt nýtt ár öllsömul.
Það var mikið að gera í desember mánuði, byrjun desember voru prófin og gengu þau ekki alveg nógu vel en það er alltí lagi. Eftir prófin tók vinnan við og ég vann ansi mikið bæði á Dvalarheimilinu í Borgarnesi og svo á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Jólin voru afskaplega fín fékk mikið af fallegum gjöfum og nóg til að lesa, Binni bróðir pabba var með okkur á aðfangadagskvöld og það var virkilega gaman að hafa hann hjá okkur, eftir hálf 12 fór ég til Guðmanns þá var hann að koma úr vinnuni og var með honum að opna pakkana og fórum svo bara að sofa fljótlega vorum bæði mjög þreitt. Á jóladag fór ég til ömmu og afa í jólaboð sem var rosalega fínt, fljótlega eftir að ég var búin að borða fór ég heim að sofa því að ég var að fara á næturvakt og síðan rúlluðu vaktirnar hvor á eftir annarri.
Nú er skólinn tekin við, ég er byrjuð í nýjum skóla Fjölbrautaskólann við Ármúla og er þar á Sjúkraliðabraut, þetta er allt svo nýtt og spennandi og það er gaman að byrja í nýjum skóla og mér líkar vel.
Þetta er nóg í bili
Með bestu kveðju Rakel

Hóhó
-Rakel Bryndís


Hér er ég á miðvikudagskvöldi!
Jæja þá er ég mætt enn eina ferðina. Ekkert mikið búið að gerast hjá mér nema er nýskriðinn uppúr heimanámsflóði ritgerðir heimdæmi, og ekkert nema endalaus lestur! En nóg með að það fer að nálagst prófin og jólin og þá er það bara að vinna svo maður komist í skóla næstu önn, er búin að sækja um í FÁ og ætla á sjúkraliðabraut.
En ég hef mikið verið að hugsa um þessa kreppu sem allir eru að velta sér uppúr, ég hef einhvernvegin aldrei átt það mikla peninga að ég hefði þurft að vera áhyggjufull en alltaf ánögð þó svo ég hafi ekki átt mikla peninga. Þetta er umtalað í fréttunum[sem ég skil að mestu leiti] en það sem ég skil ekki er að maður opnar ekki blað öðruvísi en það sé troðfullt af mismunandi fréttum og útgáfum af þessari kreppu, maður kveikir á sjónvarpinu og það er heldur ekkert annað sem maður fær að vita, svo er farið að gera grín af þessu í spaugstofunni. Hvað er virkilega svona fyndið við þetta? Auðvitað á fólk að vera jákvætt en ég er bara greinilega svona húmorslaus að ég botna ekki í þessum nýju bröndurum íslendinga.
En ég ætla að segja þetta gott í bili áður en blóðþrýstingurinn fer að hækka mikið meira í þessum hamagangi mínum!
Kveðja Rakel húmorslausa!
Fimmtudagur
ég nenni ekki meiru bloggi þannig bæ:)
Rakel
Fimmtudagur.
Þetta er nóg í bili.
Rakel Bryndís
Þriðjudagur í fullu fjöri:)
Á Laugardaginn vaknaði ég fyrir 7 og fékk mér að borða og svo með mömmu og Rúnsa í skalló að setja saman tjöldin. Fengum okkur síðan að borða í íþróttahúsinu. Þessi dagur var bara mjög fínn og fyrri partur dagsins fór í svona hinar og þessar ferðir að sækja dót, nenni ekki að telja það upp, síðan byrjaði sauðamessuhátíðinn, Friðrik, amma og afi komu og við fórum niður í skalló þá ákvað ég og Friðrik að taka upp fyrir pabba hlupum uppí rúv að ná í myndavélina og standinn og ég elti hann bara útum allt, síðan kom hann Guðmann og við eltum Friðrik en nenntum því ekki á endanum þannig við fórum að horfa á Hvanndalsbræður sem vorum mjög góðir. Þessi sauðamessa heppnaðist mjög vel, veðrið var mjög gott líka. Um kvöldið fengum við okkur lambalæri og síðan skelltum við okkur á ball, sem var mjög fínt var í miðasölunni í smá tíma.Nóg um sauðamessuna, á morgun verður litli bróðir minn 10 ára hann Kári og ég vil óska þér til hamingju með daginn kúturinn minn:*
Þetta er nóg í bili.
-Rakel Bryndís

Alltaf kemur maður aftur.
Það er ekkert að marka mann lengur, ég er búin að hætta með blogg síðu alveg triljón sinnum en byrja alltaf aftur.. Ég fékk svo mikla löngun til að blogga um dagin að ég ákvað að uppfæra þessa síðu. Ekkert sérstakt hefur gerst í mínu lífi núna, allt ósköp svipað skóli, vinna, læra og þetta helsta. Ég var í prófi í gær í áfanga sem ég ætla ekki að segja hvaða áfangi það er. En ég fór í prófið hélt ég væri nú nógu vel undirbúin sem reyndist víst ekki ég vissi ekki neitt, ég horfði bara á prófið og ég var orðin svo pirruð það hjálpaði ekki til þegar kennarinn byrjaði að lesa prófið fyrir sjálfan sig og tala við sjálfan sig, síðan var einn nemandi búinn með prófið og tók kennarinn við því las það yfir þá meina ég ekki hljóði og hló inná milli sem sínir það að þessi kennari var ekki að sýna neina virðingu gagnvart nemendum sínum. En það varð til þess að ég varð mjög fúl það sem eftir varð skóladagsins en síðan róaðist ég nú niður. Fór til Ástu frænku sem er allgjör snillingu því það er sama hvað það er þá getur hún alltaf hjálpað mér í öllu skiptir ekkert hvað það er hún getur alltaf reddað þessu. Síðan fór maður bara örlítið skrepp heim og á Hnúk til Guðmanns, dagurinn varð ekkert lengri en það. Jæja helgin að koma og maður tekur það bara rólega nema á morgun þá verður maður að skella sér á septemberfest.
En ég hef þetta ekki lengar í bili kv. Rakel Bryndís.
